Glasgow - Scotland with Style
Home » SeeGlasgow » Languages » Icelandic » Samgöngur  » Járnbrautir

Járnbrautir

Það er að verða æ vinsælla að ferðast með járnbrautum, en það býður upp á hvíld og ánægju fyrir þá ferðamenn, sem ekki vilja missa af að sjá landið sem verið er að heimsækja. Aðaljárnbrautarstöðin (Central Station) í Glasgow er einn af miðpunktum járnbrautarnetsins á Bretlandseyjum og þaðan er hægt að komast áfram til fjölmargra áhugaverðra og fagurra staða innan Greater Glasgow og Clyde dalsins. Hún er stærsta brautarstöð Skotlands og er staðsett í hjarta fjármála- og viðskiptahverfis borgarinnar. Daglega fara um 90.000 manns um brautarstöðina. Beinar tengingar eru við Penzance í suðri, alla leið vestur til Ardrossan og Ayr, og svo sigla ferjur til Írlands og eyjanna við vesturströnd Skotlands.

Aðaljárnbrautarstöðin (Central Station) var byggð 1879 og er byggingin nú vernduð (Grade A), en hún stendur á sögufrægum stað. Stöðin var reist á röð boga við fjölförnustu göngu- og verslunargötur Glasgow þar sem mest er að gera og nýtur hún góðs af fjölda smásöluverslana og veitingastaða og býður upp á auðvelt aðgengi að því helsta, sem Glasgow hefur uppá að bjóða. Boðið er upp á strætisvagnaferðir frá Gordon Street, fyrir framan brautarstöðina, til Glasgow Queen Street brautarstöðvarinnar og Buchanan strætisvagnastöðvarinnar.

Glasgow Queen Street brautarstöðin er önnur aðaljárnbrautarstöðin, sem staðsett er í miðborginni og er hún upphaf hinnar nafntoguðu West Highland Line. Ásamt því að bjóða upp á ágætar tengingar við svæði kringum Greater Glasgow svæðið, þjónar brautarstöðin almennum þörfum viðskiptalífsins sem og ferðamanna með "Express" hraðferðum til Edinborgar á 15 mínútna fresti, en ferðin tekur innan við 50 mínútu. Talsverðar endurbætur hafa farið fram á Queen Street brautarstöðinni. Gert hefur verið við þakið fyrir 15 milljónir Sterlingspunda og í ár á að ljúka við fullkomna endurnýjun brautarpalla. Á þá verður settur kalksteinn af bestu gerð og þeir kantlagðir.

Til að afla upplýsinga um járnbrautarferðir í Bretlandi skal hafa samband við upplýsingasíma járnbrautanna (National Rail Enquiries) í síma +44 (0)8457 48 49 50, en hann er opinn allan sólarhringinn.

Nánari upplýsingar um einstaka rekstraraðila járnbrauta fást á eftirfarandi stöðum og þar er hægt að bóka ferðir:

Great North Eastern Railway (GNER) og Virgin Trains bjóða beinar ferðir frá London til aðalbrautarstöðvarinnar (Central Station) í Glasgow, annars vegar frá King’s Cross brautarstöðinni og hins vegar frá Euston brautarstöðinni. Heimasíða GNER býður bókanir á netinu, tímaáætlanir, upplýsingar um leiðir og sérstök tilboð. Virgin býður einnig pantanir á netinu, leiðakort, upplýsingar um ferðir og gagnlegar upplýsingar um þá áfangastaði, sem valdir eru. Einnig fást upplýsingar um þjónustu um borð, aðstoð við farþega og viðskiptaferðir.

Railtrack : býður upp á tímaáætlanir með leitarmöguleika og auðvelt er að skipulegga ferðina. Einnig er að finna upplýsingar um helstu brautarstöðvar í Bretlandi, svo sem kort af stöðvunum, nágrenninu og gatnakort.

ScotRail : veitir upplýsingar um West Highland Line, North Highland Line og Caledonian Sleepers (næturlestir frá Skotlandi til London). Þar er einnig að finna tímaáætlanir, sérstök farmiðatilboð og aðra nytsama tengla.

The Trainline : býður hreina og beina leið til að bóka lestarferðir beint á netinu. Notið þennan tengil til að finna tíma, bóka miða og taka frá sæti hjá hvaða lestaraðila sem er á meginlandi Bretlands.

BritRail : veitir upplýsingar um sérstaka járnbrautarpassa, eins og Freedom of Scotland Travel Pass, sem er eingöngu fyrir erlenda ferðamenn. Einnig er þar að finna tímaáætlanir og upplýsingar um hvar má kaupa og hvernig á að nota BritRail-passa. BritRail-passar eru ekki fáanlegir í Bretlandi. Þá verður að kaupa utan Bretlands.